Greinar

Ójafnréttislandið Ísland – karlmönnum mismunað

Ójafnréttislandið Ísland – karlmönnum mismunaðKarlmenn missa vinnu sína út frá innantómum ásökunum. Karlmönnum er mismunað hjá dómstólum, tapa sambærilegum dómsmálum og konur vinna. Þeir njóta minni réttinda. Karlmenn eru úthrópaðir á samfélagsmiðlum og stórir fjölmiðlar notaðir til að ráðast að þeim. Stígamót og Kvennaathvarfið eru með áróður sem gengur út á að mála karlmenn upp sem helstu gerendur ofbeldis, en slíkt eru ósannindi. Samt fá þessi samtök mikla fjármuni frá ríki til að halda slíkum áróðri úti. Fjölmiðlar enduróma þessum ósannindum án þess að skoða staðreyndir.
Hér er eitt afgerandi dæmi um það hvernig ólík nálgun er gagnvart karli og konu sem bæði voru með dóm á bakinu. Karlmaðurinn virðist hafa fengið dóm þar sem hann er blekktur, konan fær dóm fyrir að beita líkamlegu ofbeldi. En viðbrögð samfélagsins og íþróttafélaganna er afgerandi ólíkur eftir því hvort kynið er um að ræða. Svona er þetta því miður með allt í íslensku samfélagi. Ísland er ójafnréttisparadís kvenna þar sem þeim er hyglað hægri vinstri á kostnað karlmanna. Sérstaklega er gróflega brotið á karlmönnum í réttarkerfinu og forsjármálum.

Tengill á umfjöllun DV um þetta ójafnrétti í íslensku samfélagi HÉRNA

Höfundur: karlaathvarfið