Kynferðisbrot af hálfu kvenna algengari en haldið er
Kynferðisbrot af hálfu kvenna eru mun algengari en haldið er fram og almennt er viðurkennt. Sú staðreynd fari hins vegar afar hljótt. Þetta var meðal þess sem fram kom í máli Kristins Sigurjónssonar rafmagns og efnaverkfræðings í þætti Arnþrúðar Karlsdóttur.
Kristinn segir að í grein í norsku sálfræðitímariti hafi komið fram að kynferðisbrot af hálfu kvenna séu mun algengara en haldið sé fram og það sé rakið nokkuð ítarlega í greininni.
Kristinn segir þá karlmenn sem verða fyrir kynferðisbroti af hálfu kvenna lenda í þeirri stöðu að það sé litið svo á að þeir eigi bara að sætta sig við ofbeldið og spurðir oftar en ekki hvort þeir hafi ekki bara verið ánægðir að konan hafi gert sér dælt við þá. Það sé litið þannig á að það sé sjálfsagt mál að þeir sætti sig við ofbeldið. Ofbeldi af þessu tagi í þeirra garð sé fullkomnlega eðlilegt.
Þá bendir Kristinn á að Erin Pizzey stofnandi fyrsta kvennaahvarfsins hafi, eftir að hafa verið flæmd úr landi, komið fram með þær upplýsingar að barnaníð af hálfu kvenna sé jafn algengt og barnaníð af hálfu karla.
„málið er að þegar við tölum um kynferðislegt ofbeldi af hálfu kvenna þá er það oftast meira gagnvart ungum drengjum en það er kannski flokkunin sem er sérstök því það er talað um barnaníð þegar um er að ræða brot gegn ókynþroska einstaklingum. Það er hins vegar hin flokkunin sem er brot gegn kynþroska einstaklingum undir lögaldri“
Mjög falið ofbeldi sem er þaggað niður
Hann segir þetta mjög dulið ofbeldi sem ekki virðast megi ræða um og það sé honum hulin ráðgáta hvers vegna ekki megi rannsaka þetta nánar og draga þessi mál upp á yfirborðið og fjalla um þau á faglegum forsendum.
Búið að teygja hugtakið kynferðisofbeldi í allar áttir
Fram kom í þættinum að í kjölfar MeToo byltingarinnar sé búið að teygja hugtakið kynferðisofbeldi í allar áttir og kynferðisáreiti sé sem dæmi látið falla undir hatt kynferðisofbeldis. Kristinn segir þrennt einkenna MeToo málin, fyrst sé farið út í ásakanir og númer tvö þá sé ásakað um eitthvað sem á að hafa gerst fyrir mörgum árum og í þriðja lagi sé ekkert farið ofan í hvað á að hafa gerst eða undir hvaða kringumstæðum.
Sex saklausir einstaklingar flæmdir úr landsliðinu
„þetta gerðist til dæmis í landsliðsmálinu og þetta gerði það að verkum að sex einstaklingar voru flæmdir úr landsliðinu. Svo þegar þetta var skoðað kom i ljós að ekkert var á bak við þessar ásakanir. Vissulega geta þessi mál verið flókin og margir þættir sem þarf að taka inn í t,d hvort um hafi verið að ræða þrýsting eða eitthvað slíkt. Nú vitum við það nefnilega að stúlkur sækja mjög í slík átrúnaðargoð og það er nú frægt þegar Tom Jones kom hingað á sínum tíma og nærbuxurnar flugu í hrönnum upp á sviðið hjá honum svo þetta er alveg þekkt. Svo koma ásakanir miklu seinna í þessum tilvikum þar sem stúlkur sækja í átrúnaðargoðin um að þetta hafi verið kynferðisofbeldi eða áreiti “ segir Kristinn, Samkvæmt Útvarp saga.
Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan
