Uncategorized

Klemma – Karolina Fund

Heimildamyndin segir frá ólíkum birtingamyndum umgengnismála í íslensku samfélagi þar sem er að finna fjölbreytt samskiptaform barna og foreldra, og meðferð forsjármála í íslenskri stjórnsýslu.

Klemma - Karolina FundHeimildamyndin segir frá ólíkum birtingamyndum umgengismála í samfélagi okkar þar sem er að finna mörg og fjölbreytt fjölskyldumynstur.

Í myndinni er sagt frá svokallaðri Foreldraútilokun og ólíkum sjónarmiðum um fræðilega tilurð hennar.

“Klemma” dregur einnig upp mynd af fyrirkomulagi og reglum innan stjórnsýslunnar hvað varðar umgengi og forsjá, meðferð ágreiningsmála í hinu lagalegu umhverfi og greinir frá helstu átakalínu í málaflokknum en nálgast efnið einnig út frá fræðilegu sjónarmiði.

Safnað er fyrir tilteknum verkþáttum, það er hönnun, grafískum þáttum myndar og “animation”.

Klemma - Karolina FundHeimildamyndin verður allt að 50 mín að lengd, og aðgengileg á streymisveitum og miðar umfjöllun þeirra við íslenskar aðstæður og íslenska áhorfendur.

Aðstandendur telja vöntun á upplýsandi efni um málefnið. Þeir eru bæði fagfólk innan sjónvarps- og kvikmyndaframleiðslu, fræðimenn um umgengnismál og áhugafólk um velferð barna í síbreytilegum og krefjandi samfélagi.

Almenn nafnleynd gildir um aðstandendur og styrktaraðila sökum viðkvæmni málaflokksins og persónuverndar, og er þeirra ekki getið nema þess sé óskað en er hér heitið á stuðning áhugafólks um málefnið.

Passport Miðlun

Ábyrgðaraðili er Passport Miðlun
Framleiðandi Einar Þór Gunnlaugsson.

Smelltu á logoið að neðan til að skoða

Klemma - Karolina Fund