Greinar

Foreldrafirring er andlegur skæruhernaður gegn börnum

Foreldrafirring er andlegur skæruhernaður gegn börnumForeldrafirring er andlegur skæruhernaður gagnvart börnum og er stórt alþjóðlegt og samfélagslegt vandamál sem er gríðarlega mikilvægt að vekja athygli á. Þetta var meðal þess sem fram kom í máli Hugins Þórs Grétarssonar rithöfundar sem kynnt hefur sér slík mál og þekkir af eigin raun.

Í dag er alþjóðlegur dagur foreldrafirringar og af því tilefni ræddi Arnþrúður Karlsdóttir við Huginn, meðal annars um stöðu þessara mála hérlendis og um afleiðingar foreldrafirringar.

Huginn segir birtingarmynd foreldrafirringar sem sé skilgreint sem alvarlegt ofbeldi gegn barni komi oftast í kjölfar skilnaðar vera þá að annað foreldrið reyni að eitra hug barnsins til þess foreldris sem það býr ekki hjá og því miður eru fjölmörg dæmi þess að umgengnistálmanir séu fylgifiskur slíkrar firringar, þ,e að lokað sé á umgengni að hluta eða alveg að ósekju. Þá eru dæmi um að tekist hafi að eitra hug barns svo mjög að það hreinlega óttast foreldri sem það jafnvel hafi aldrei verið í samskiptum við og ótinn stafi af því að búið sé að innræta þann ótta inn í barnið af hinu foreldrinu.

„það er byrjað á að tala niðrandi um annað foreldrið og svo vindur þetta upp á sig alveg frá því að samskipti eru takmörkuð að hluta eða alveg og tengslin milli barnsins og umgengnisforeldrisins eru þannig slitin í sundur“segir Huginn.

Vegnar almennt verr í lífinu
Hann segir að börn sem verði fyrir þessu vegni almennt verr í lífinu en þeim börnum sem geta átt góð og heilbrigð samskipti við báða foreldra, það hafi meðal annars verið sýnt fram á með nokkrum fjölda rannsókna. Börn sem verða af samskipum við annað foreldri vegna tálmana glíma meðal annars við þunglyndi og aðra andlega kvilla.

Huginn bendir á að foreldri sem er haldið foreldrafirringu blandi barninu gjarnan inn í deilumál foreldranna, deilumálum sem hafa ekkert með barnið að gera. Það sé hluti af þeirri vegferð að mála umgengnisforeldrið upp sem vonda manneskju. Til þess svo að réttlæta það að hafa klippt á samskiptin grípur foreldrið oft til þess að ásaka umgengnisforeldrið um ofbeldi líkamlegt eða kynferðislegt gegn barninu eða fram kemur ásökun um einhvers konar vanhæfni.

Mál sem þessi hafa ekki eingöngu áhrif á umgengnisforeldrið því þegar tálmun hefst er gjarnan klippt á samskipti við alla stórfjölskyldu umgengnisforeldrisins og segir Huginn að því væri í raun réttara að tala um fjölskyldufirringu.

Allt að 7000 börn útilokuð frá samskiptum við annað foreldrið
Hann segir vandamálið hér á landi gríðarstórt og sé miðað við tölur frá Danmörku þar sem 100.000 börn séu algerlega útilokuð frá samskiptum við annað foreldrið megi gera ráð fyrir að hér á landi séu um 7000 börn sem ekki njóta samvista við annað foreldrið vegna umgengnistálmana.

Þá sé það ákveðið vandamál að foreldri sem beitir tálmunum er í raun verðlaunað fyrir hegðunina því oftar en ekki er horft til þess hversu náin tengsl eru á milli umgengnisforeldrisins og barnsins þegar úrskurða á í forsjár og umgengnismálum.

Hlusta má á þáttinn og frásögn Hugins í spilaranum hér að neðan

Huginn segir að það sé afleiðing þess að dómarar í hefðbundnum dómstólum hafi litla sem enga þekkingu á málaflokknum og því færi betur á þvi að hægt væri að tilkynna tálmunarmál til Barnaverndar en í dag hafi Barnavernd lítil sem engin afskipti af slíkum málum. Þá segir Huginn að gott væri að koma hér upp fjölskyldudómstól þar sem erfið mál sem varði umgengni og forsjá yrðu tekin fyrir, samkvæmt Útvarp saga.