Greinar

Fjárhagsleg misnotkun og ofbeldi

Fjárhagsleg misnotkun og ofbeldiSamtöl við karlmenn hafa leitt í ljós að fjárhagsleg misnotkun, sem vel má flokka sem ofbeldi, er mjög algengur vandi hér á landi. Tælingar á fölskum forsendum, þar sem karlmenn eru misnotaðir tilfinningalega og fjárhagslega, í þeim eina tilgangi að féfletta karlmennina. Dæmi eru um að karlmenn hafi komið sér í miklar skuldir þegar þeir falla fyrir slíkum blekkingum.
Stundum varir ofbeldið lengi, þar sem karlmenn eru blekktir vísvitandi og þeir látnir snattast í kringum aðra manneskju, ýtt út í að greiða kostnað og reikninga viðkomandi og jafnvel blekktir til að veita lán sem aldrei stendur til að greiða. Brotamanneskjurnar nota falsloforð og tælingar og misnota svo einstaklinga sem fyrir þessu verða. Karlmennirnir eru dregnir áfram á asnaeyrum og brotamanneskjurnar láta sem þær séu áhugasamar en eru ekki, og fyrir þeim vakir það eitt að féfletta einstaklingana og misnota þá.
Dæmi eru um að karlmenn komi sér í stórar skuldir þegar þeir eru misnotaðir með þessum hætti. Önnur dæmi, eru um að karlmenn vakna jafnvel upp við það að vera í sambandi í nokkur ár þar sem þeir eru lítið meira en peningaveski fyrir maka sinn.

Hér er umfjöllun DV þar sem kona virðist herja á einmana karlmenn og beita þá fjárhagssvikum.