Óreiða, útvistun og milljónir sem vantar
Það er ekki á hverjum degi sem slíkt fjaðrafok verður hjá opinberri stofnun að stjórn hennar segir af sér, yfirstjórnendur eru sendir í leyfi og síðar reknir. En þetta gerðist þó hjá Innheimtustofnun sveitarfélaga.
Innheimtustofnun var sett á fót 1972 til að koma meðlagsmálum á einn stað, áður voru þau á hendi sveitarfélaganna og innheimtur bæði erfiðar og árangurslitlar. Eini tilgangur Innheimtustofnunar var að innheimta meðlag þegar það gekk ekki öðruvísi og koma því til þeirra sem áttu að fá það, foreldris með barn. Ef ekki náðist að innheimta greiddi jöfnunarsjóður sveitarfélaga – sem sagt almenningur – mismuninn.
Frá upphafi var stofnunin bæði umdeild og í hálfgerðu limbói. Ríkið setti lög, sveitarfélögin áttu stofnunina en umsjón og utanumhald var eiginlega hvergi. Lögin um hana voru tvær frekar loðnar blaðsíður.
Um langt árabil var vitað að starfsfyrirkomulag stofnunarinnar var óheppilegt, margar skýrslur voru samdar og reynt að gera breytingar. Það var þó ekki fyrr 2020 sem eitthvað breyttist.
Lögbundnum verkefnum útvistað til innanhúsfólks
Árið 2020 ákváðu æðstu stjórnendur stofnunarinnar, Jón Ingvar Pálsson þáverandi forstjóri og Bragi Rúnar Axelsson, yfirlögfræðingur og forstöðumaður útibús á Ísafirði, að gera róttækar breytingar á innheimtuferli meðlags. Innheimta hafði gengið illa, að sögn forstjórans, en með nýju tölvukerfi var talið að auka mætti skilvirkni, minnka handavinnu og auka innheimtu, einkum þann hluta sem kallast fyrirtækjainnheimta. Það eru kröfur á hendur vinnuveitenda þeirra sem greiða eiga meðlag um að taka af launum starfsmanna sinna og skila til Innheimtustofnunar.
Jón Ingvar segir að leitað hafi verið tilboða og lausna en svörin verið þau að svona forritunarvinna væri dýr og nánast ómöguleg. Bragi, yfirlögfræðingur, hafi haft aðrar hugmyndir og því hafi þeir ákveðið að ráðast í tilraunaverkefni. Skilyrði var þó að það kostaði Innheimtustofnun ekki neitt.
Stórum hluta lögbundinna verkefna skrifstofunnar á Ísafirði var því útvistað til lögmannsstofu í bænum, Officio, beint á móti skrifstofu Innheimtustofnunar sem var handan götunnar. Það sem vakti sérstaka athygli var að Officio var í eigu Braga sjálfssem gegndi lykilstöðu sem yfirlögfræðingur stofnunarinnar. Þetta þýddi að hann gat, í krafti stöðu sinnar, samið við eigið fyrirtæki um að taka yfir stóran hluta lögbundinna verkefna Innheimtustofnunar.
Sjálfur samningurinn var stuttur, tæp blaðsíða, og lýsing verkefnisins lítt útfærð.
Mæltu sjálfir gegn útvistun
Það er reyndar athyglisvert að þessir sömu stjórnendur höfðu ekki löngu áður varað við hvers konar útvistun. Innheimta meðlags væri ekki sambærileg við aðra innheimtu.
„Hugmyndafræði um að bjóða innheimtuna út til einkaaðila er óvarlega ígrunduð og lýsir ákveðinni vanþekkingu á eðli og tilgangi starfsemi IS.“
„Fyrirséð er að ef innheimtan væri á forræði einkaaðila að stjórnsýslumálum og kvörtunum myndi fjölga verulega.“
Þessar athugasemdir Jóns Ingvars og Braga koma fram í skýrslu sem KPMG gerði um Innheimtustofnun 2014.
Kveikur spurði Jón Ingvar hvers vegna afstaða þeirra Braga til úthýsingar hefði breyst og hann fullyrti að mikill munur væri á. Einungis hluta innheimtunnar hefði verið úthýst og aðeins hefði staðið til að gera það í skamman tíma enda ljóst að stofnuninni yrði brátt lokað og innheimta færð í annan farveg. Og starfsfólkið, sem tók verkefnið að sér, hefði haft þekkingu og kunnáttu á málaflokknum.
Starfsfólkið sem Jón Ingvar vísar til er starfsfólk Innheimtustofnunar á Ísafirði. Þorri þess fékk líka starf hjá Officio. Fát kom á Jón þegar hann var spurður hvort einhverjir aðrir en þeir sem þá þegar störfuðu fyrir Innheimtustofnun hefðu komið að verkefninu.
„Ég hef ekki 100% vissu fyrir því. En já, ég heyrði það. Mér var tilkynnt það. Ég hafði ekki aðkomu að þessu fyrirtæki.“
Ekki var ráðist í útboð vegna tölvuverkefnisins eða úthýsingarinnar. Hvergi voru færð rök fyrir því að þessi leið var farin og stjórn stofnunarinnar var aldrei upplýst um samninga sem gerðir voru. Heimildarmenn Kveiks, meðal fyrrverandi starfsmanna Innheimtustofnunar, segja að um leið og frést hafi af þessu fyrirkomulagi hafi vaknað spurningar og það hafi verið kurr í starfsmönnum. En Jón Ingvar gefur ekki mikið fyrir það.
„Allt orkar tvímælis. Það er alveg sama, það gerir það, alveg sama hvað það er. Og sérstaklega í lögfræði. Í lögfræði, geturðu fengið eina, tvær, þrjár, fjórar eða fleiri niðurstöður. En ég ætla ekkert að gera lítið úr því. Eftir á að hyggja mátti gera þetta eða hitt? Jú, örugglega. En það var ekki tilefni þessara ofsafengnu viðbragða sem urðu við þessu. Það var bara ekki til, ekki tilefni, ekki neitt,“ svaraði Jón Ingvar og bætti við að samningurinn hefði ekki verið neitt leyndarmál innan stofnunarinnar. Tilgangurinn hafi verið að auka innheimtuna en ekki bara sinna venjulegum, daglegum störfum.
Þetta er meginröksemdin fyrir því að allt í lagi hafi verið að semja við stjórnendur og annað starfsfólk um að vinna verkefnin sem verktakar eða í aukavinnu sem þau fengu þegar greitt fyrir sem launafólk hjá Innheimtustofnun: Þarna hafi verið greitt fyrir kvöld- og helgarvinnu. En heimildarmenn Kveiks og kæruskjal sem síðar var sent héraðssaksóknara segja að vinnan hafi í raun mestmegnis farið fram á dagvinnutíma og því verið tvígreitt fyrir sömu vinnu, á sama tíma. Tækjabúnaðurinn sem notaður hafi verið hafi auk þess verið búnaður Innheimtustofnunar.
Ríkisendurskoðun fær ekki svör
Á haustmánuðum 2021 vann Ríkisendurskoðun að enn einni úttektinni á starfsemi Innheimtustofnunar, að beiðni stjórnvalda, um hvernig væri best að leysa verkefni hennar til framtíðar. Þegar skýrslan kom út var meðal annars tæpt á því hvernig gengið hefði að fá svör frá stjórnendum Innheimtustofnunar:
Eftir að úttekt Ríkisendurskoðunar hófst í september 2021 sendi embættið ítarlegar spurningar til Innheimtustofnunar í gegnum þáverandi verkefnisstjórn samgöngu- og sveitarstjórnaráðuneytis, félagsmálaráðuneytis og Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Svörum stofnunarinnar og skýringa við mörgum þessara spurninga, ásamt þeim gögnum sem frá henni bárust, var að mati Ríkisendurskoðunar verulega ábótavant. Um mánaðamótin nóvember/desember 2021 gerði Ríkisendurskoðun verkefnisstjórninni grein fyrir því mati sínu að í mörgum tilfellum væri um að ræða tilraunir til að leyna upplýsingum og gögnum og afvegaleiða úttekt á starfsemi stofnunarinnar. Taldi Ríkisendurskoðun sum svörin beinlínis röng og villandi. Ríkisendurskoðun vakti á sama tíma athygli verkefnisstjórnarinnar á því að stjórnun og innra skipulag Innheimtustofnunar væri langt frá þeim viðmiðum sem ríkið hefði sett sér um opinber fjármál og faglega stjórnsýslu. Eins gerði Ríkisendurskoðun grein fyrir því að úttektin hefði varpað ljósi á óeðlilega háttsemi innan Innheimtustofnunar sveitarfélaga, á ábyrgð stjórnenda hennar. Mat Ríkisendurskoðunar væri að nálgast þyrfti hugsanlega tilfærslu verkefna Innheimtustofnunar til ríkisins með öðrum hætti en verið hefði, án aðkomu þáverandi stjórnar og stjórnenda stofnunarinnar.
Þegar þáverandi stjórnendur gerðu stjórn Innheimtustofnunar grein fyrir háttsemi sinni, að hluta, á stjórnarfundi 10. desember 2021 ákvað stjórnin að umrædd háttsemi fæli í sér trúnaðarbrest og skipaði stjórnendum að hverfa frá henni, ásamt því að skila stjórninni skýrslu um málið. Frumkvæði stjórnenda hvað tilkynningu til stjórnar varðar má rekja til eftirgrennslanar fjölmiðla um háttsemina.
Aðspurður um athugasemdir Ríkisendurskoðunar brást Jón Ingvar illa við og kallaði þær hrokasvar eða fullyrðingar. Þeir Bragi hefðu samt svarað spurningum eftir bestu vitund, undir pressu og með stuttum fyrirvara. Aldrei hefði verið leitað frekari skýringa hjá þeim.
Hann bætti því við að Ríkisendurskoðun hefði ekkert með Innheimtustofnun sveitarfélaga að gera. Aðkoma Ríkisendurskoðunar væri ekki í samræmi við lög. „Hún svindlar sér inn með því að fara í gegnum ráðuneytið. Hún fer í gegnum ráðuneytið. Hún hefur ekkert um þetta að segja, ekki neitt.“
Hið rétta er að Ríkisendurskoðun og samgöngu- og sveitastjórnarráðuneytið gerðu í september 2021 með sér samning um úttekt á Innheimtustofnun sveitarfélaga.
Kveikur grenslast fyrir
Snemma veturs fékk Kveikur einnig veður af því óvenjulega fyrirkomulagi sem tekið hafði verið upp. Eftirgrennslan og fyrirspurnir Kveiks voru meðal þess sem leiddi til dramatísks stjórnarfundar tíunda desember 2021.
Stjórnin kallaði Jón Ingvar og Braga á fundinn til að krefja þá svara um samninginn við Officio og útvistunarverkefnið.
Þegar Jón Ingvar var spurður um þennan fund og viðbrögð stjórnarinnar í viðtali í Kveik hafði hann fá svör, lýsti fyrst þeirri skoðun sinni að hver mætti hafa sína skoðun á málinu sín vegna.
En þegar á hann var gengið var svarið á þessa leið: „Það breytir því ekki að þetta var gert og þegar þetta kemur upp þá óskaði ég eftir bara að láta af störfum. Ef þetta væri eitthvað stórmál, að vinna þá vinnu sem fyrir okkur var lagt, til að auka innheimtuna sem var stöðugt á okkur, þá bauðst ég til að stíga til hliðar og það var alveg bara í mínum huga bara fínt, gott, klárað. Búið.“
Stjórnin hafi ekki tekið því boði heldur borið á hann lof fyrir störf sín. En síðar sama dag höfðu allir stjórnarmenn sagt af sér.
Allt springur í loft upp
Aldís Hilmarsdóttir, Þóra Björg Jónsdóttir og Jón Páll Hreinsson voru skipuð í nýja stjórn strax eftir helgi og þá hófst ævintýraleg atburðarás. Þau sögðu í sameiginlegu viðtali við Kveik að við þeim hefði blasað að fyrrverandi stjórn hefði sagt af sér í heild vegna trúnaðarbrests. Fljótlega hefði orðið ljóst að ekki væri hægt að komast til botns í málinu nema Jón Ingvar og Bragi yrðu sendir í leyfi.
Þau áttu því strax fundi með starfsfólki í Reykjavík og héldu svo til Ísafjarðar, sem kalla má miðju þeirra óvenjulegu starfshátta sem teknir höfðu verið upp hjá Innheimtustofnun.
Aldís og Þóra mættu á skrifstofuna á Ísafirði, fylgdu Braga út og greindu starfsfólki frá stöðunni. Daginn eftir komu þær aftur og furðuðu sig á ástandinu á skrifstofunni.
„En við höfum svona grunsemdir um að það hafi verið farið þarna inn um kvöldið. Þegar við komum morguninn eftir þá var ekki allt eins og þegar við komum daginn áður,“ segir Aldís í viðtali við Kveik.
Kveikur hefur rætt við fólk sem var á staðnum þennan dag og lýsti því að hópur starfsmanna hefði mætt eftir lokun, að undirlagi Braga forstöðumanns. Hópurinn hefði sótt lausamuni sem fólkið taldi sig eiga auk þess sem vélbúnaður hefði verið skemmdur, fjarfundabúnaður og húsmunir teknir og það sem mestu skiptir, tölvuþjónn með sérstaklega sérsmíðaða innheimtukerfinu. Óljóst er hvort þar voru geymdar viðkvæmar persónuupplýsingar um þúsundir meðlagsgreiðenda og -viðtakenda. Kveikur margóskaði eftir viðtali við Braga sem hann vildi ekki veita.
Enn meiri útvistun, enn fleira óljóst
Kjarnaverkefni skrifstofunnar á Ísafirði var svokölluð fyrirtækjainnheimta, verkefnið sem úthýst var til Officio, og svo erlend innheimta. Henni hafði lengi verið úthýst en um leið og samið var við Officio var allt í einu samið við annað fyrirtæki, A&T, um þann hluta starfsemi stofnunarinnar.
Fyrirtækið var nýstofnað og skráð sem lögmannstofa en skráður eigandi, sem var jafnframt formaður stjórnar og prókúruhafi, var ekki lögmaður. Hann hafði hins vegar tengsl við Braga Rúnar Axelsson.
Þegar Jón Ingvar var spurður um þessi tengsl í viðtali sagðist hann ekki hafa haft neina vitneskju um þau.
„Þetta var var mér sagt að væri aðili, ég ætla nú ekkert að endilega nafngreina hann, en sem væri með þetta og langaði til að spreyta sig á þessu.
– Þannig að þú vissir ekki almennilega eða…?
Hann var með þetta fyrirtæki, já á þessu sviði og er, var að hasla sér völl á þessu sviði að mér var sagt.
– Þú kannaðir það ekki frekar?
Hvað, hvernig átti ég að kanna það? Ég sá þetta var fyrirtæki, skráð fyrirtæki.
Mér var kunnugt um það að Bragi væri kunningi þessa manns. Já og mælti með þessu og þetta fór af stað. Og niðurstaðan hlýtur að skipta máli í þessu þegar þú ert með eitt verkefni sem er að innheimta meðlög. Það hlýtur að skipta máli niðurstaðan[AÞ1] .“
Síðar kom í ljós að Bragi Rúnar Axelsson, sami maðurinn og átti Officio, var skráður í varastjórn A&T og hafði undirritað raunar undirritað svokallaðan vinnslusamning á milli A&T og Innheimtustofnunar fyrir hönd A&T. Enn fremur var lögheimili fyrirtækisins skráð í fasteign sem tilheyrði bróður Braga. Aðspurður sagði Jón þetta allt tilviljun. Í dag er fyrirtækið skráð í eigu Braga Rúnars Axelssonar en heitir Formáli ehf.
Lögreglurannsókn
Í byrjun apríl 2022 var svo tilkynnt að Jóni Ingvari og Braga hefði verið sagt upp vegna alvarlegra brota í starfi. Stjórn Innheimtustofnunar ákvað að senda kæru til héraðssaksóknara vegna gruns um að ekki hefði verið staðið með tilhlýðilegum hætti að verkefnum og útvistun þeirra. Málið væri þannig vaxið að stjórnin gæti ekki rannsakað það frekar. Það væri verkefni lögregluyfirvalda.
Aftur dró til tíðinda 7. apríl. Héraðssaksóknari sendi tíu manna sveit lögreglumanna og sérfræðinga til Ísafjarðar þar sem Bragi Axelsson var handtekinn og færður til yfirheyrslu. Honum var sleppt um kvöldið. Samkvæmt heimildum Kveiks fór lögregla einnig inn á heimili vinar Braga sem var skráður stjórnarformaður í fyrirtæki hans. Og þá voru lögreglumenn hjá öðrum starfsmanni Innheimtustofnunar á Ísafirði.
Upphaflega kæran, sem leiddi til þessarar rannsóknar, sneri að þessum skrítna samningi og fjármunum sem ekki tókst að gera grein fyrir. Í það minnsta tvisvar var bætt við þá kæru, meðal annars vegna reikninga frá tveimur fyrirtækjum, E-mark og Leitinni ehf.
Á nokkurra ára tímabili fékk hvort fyrirtæki um sig greiddar nokkur hundruð þúsund krónur á ári fyrir vinnu, sem stjórnarmenn Innheimtustofnunar segja að hafi ekki verið innt af hendi.
Fyrirtækin eru bæði í eigu Jóns Ingvars, fyrrverandi forstjóra stofnunarinnar. Hann vísaði því á bug í viðtali við Kveik að föður hans á tíræðisaldri hefði verið greitt án þess að á móti kæmi vinnuframlag. Þvert á móti hefðu fyrirtækin unnið útboð um gerð nýs vefs, greitt hefði verið fyrir innleiðingu vefþulu, leitarvélarbestun og fleira sem hann kynni sjálfur ekki vel inn á. Verkefnin hefði starfsmaður E-mark og Leitarinnar unnið jafnvel þótt ársreikningar beggja fyrirtæka frá þessum árum sýni nánast enga veltu og tekið sé fram að engir starfsmenn hafi þar verið. Og á vefsafni Landsbókasafns, þar sem vistuð eru regluleg afrit helstu vefja, er ekki að sjá að vefþulu hafi verið að finna á vef Innheimtustofnunar.
Jón Ingvar ítrekaði skriflega eftir viðtal að vinnan sem rukkað var fyrir hefði verið innt af hendi. Ónefndir tæknimenn gætu staðfest það.
Milljónir finnast ekki
Í samningnum stutta við Officio er tilgreint að Innheimtustofnun megi ekki innheimta kostnað eða þóknun vegna innheimtu en tilgreint að lögmannsstofan Officio muni gera það. Ný stjórn Innheimtustofnunar taldi þetta ekki standast lög og óskaði umsagnar Lagastofnunar Háskóla Íslands sem taldi enga lagastoð fyrir innheimtunni. Í samningnum var vissulega minnst á þóknun en ekki hver hún ætti að vera.
„Það skiptir bara engu máli. Vegna þess að þú setur kröfu úti í bæ til lögmanns, eins og þarna er til lögmannsfyrirtækis, þá er ekkert eitt sem heitir bara gjaldskrá ríkisins. Það er hver lögmannsstofa sem setur upp sína eigin gjaldskrá,“ sagði Jón Ingvar í viðtali við Kveik. Þegar hann var spurður hvort ekki væri eðlilegt að gjald fyrir þjónustu fylgdi samningi var svarið stutt: „Af hverju? Það er ekkert sem segir það.“
Officio innheimti í nafni Innheimtustofnunar og nafn lögmannsstofunnar kom hvergi fram. Upphæðirnar sem Officio innheimti fóru fyrst inn á bankareikninga lögmannsstofunnar. Af upphæðinni var svo tekin þóknun. Þetta er ein ástæða lögreglurannsóknarinnar, að kanna hvort þær fjárhæðir sem ekki hafa skilað sér séu bara þóknun eða eitthvað annað. Samkvæmt heimildum Kveiks er mismunurinn á því sem innheimt var og því sem skilaði sér um fjörutíu milljónir króna.
Nánari skoðun leiddi í ljós að þóknun hafði verið innheimt allt frá 2018 og fór svo að Innheimtustofnun endurgreiddi ríflega 900 manns samtals í kringum sjötíu milljónir; ekki sjálfar meðlagsgreiðslurnar heldur þóknun sem innheimt hafði verið án heimildar.
Stjórnarmennirnir þrír, sem tóku til starfa eftir að málið komst í hámæli, telja að þeim Jóni Ingvari og Braga hafi mátt vera ljóst að þetta væri ekki í lagi.
„Það lá alveg fyrir að mönnum mátti vera það ljóst. Að þetta var í það minnsta á gráu svæði. Ef ekki meira,“ segir Þóra Björg Jónsdóttir, lögmaður.
Sendi starfsfólk bréf um báráttu og efasemdir
Jón Ingvar sendi starfsfólki Innheimtustofnunar bréf sumarið 2020, rétt eftir að útvistunarverkefnið hófst, þar sem nokkurrar óánægju gætti innanhúss.
Ég fékk ábendingar um það að einhverjir væru að velta fyrir sér nýju fyrirkomulagi kröfubréfamála. Það er rétt að útskýra málið til að kveða niður sögusagnir hér innandyra. Mun ég því reyna að bæta úr þessu með pósti þessum.
[…]
Í þessarri stöðu ætla ég ekki að sitja hjá með hendur í skauti og bíða þess sem verða vill. Mitt verk er meðal annars og ekki síst að standa vörð um innheimtuna. Það verður einungis vatn á myllu þeirra sem vilja sameina okkur TR ef ekkert er að gert og innheimtan fer niður úr öllu valdi, auk þess sem það er skylda okkar allra að efla innheimtuna eftir fremsta megni. Ég mun því áfram berjast á móti sameiningu með okkar góðu rökum og síðast en ekki síst með því að halda innheimtunni eins vel á floti og mögulegt er.
[…]
Þessarri útvistuðu innheimtu er sinnt af félagi í eigu Braga, en hann sinnir þessu ásamt [þáverandi starfsmanni Innheimtustofnunar á Ísafirði] og öðrum starfsmönnum þessarar stofu hans. Starfsfólk þar hefur sinnt því að senda áminningarbréf og ýta við aðilum til að fá greiðslur. Hefur það reynst vel. Ferlið er þannig að innheimtuaðilinn stofnar kröfurnar, sendir bréf og innheimtir inn á sérstakan reikning. Þegar innheimta berst er svo vikulega skilað til stofnunarinnar innheimtum kröfum og vöxtum ásamt útlögðum kostnaði IHS ef einhver er. Innheimtuþóknun er eðli máls samkvæmt þóknun til aðilans vegna innheimtu, ef hún innheimtist á annað borð. Vinna þessarra aðila er að stofni til unnin eftir lok venjulegs vinnudags og um helgar. Miðað við vinnuframlag, greiðslu alls kostnaðar, skil á vsk og öðru, er ég nokkuð sannfærður um að tímakaup þessarra aðila er ekki of hátt þegar upp er staðið. Það virðist oft loða við að það sé eðlilegt að greiða utanaðkomandi fyrir alla mögulega og ómögulega vinnu, en ef einhverjir innandyra njóta ávaxta aukinnar vinnu sinnar og nýtingu sérkunnáttu, þá sé það allt af hinu illa og gert tortryggilegt. Ég hins vegar fagna því ef við getum nýtt okkur krafta kunnáttufólks hér innandyra, sé það til hagsbóta fyrir aukinni innheimtu og stofnunina í heild.
Þá kemur hann inn á innheimtu kostnaðar eða þóknunar:
Einnig má benda á að nokkuð hefur verið um að kvartað hafi verið yfir því að af hálfu launagreiðenda í kröfubréfamálum að ekki sé lagaheimild til að reikna áfallinn kostnað. Það kann að vera nokkuð til í þessu og myndi ég ekki vilja fá kvörtun til Umboðsmanns Alþingis vegna þessa á þessum tímum sem nú eru. Er ég ekki viss um hvort slíkt félli með okkur eða ekki, þar sem lagaheimild til þessa virðist skorta, séu verkin unnin af stofnuninni. Annað sjónarmið er ef verkin eru unnin af aðila utan stofnunarinnar.
Í viðtali við Kveik sló Jón Ingvar í og úr um hvort hann teldi innheimtu kostnaðar eða þóknun standast lög.
„– Ég get ekki lesið þetta öðruvísi en að þú hafir haft áhyggjur af því að þetta væri kannski í besta falli á gráu svæði.“
Eins og ég segi, það getur allt orkað til tvímælis. Kannski er þetta vafasamt ef maður, já, já, kannski, kannski ekki.
– En hvort hafðirðu efasemdir eða ekki?
–Ég hafði í rauninni engar efasemdir um það að þetta væri heimilt sko, það er bara akkúrat engar. En ég var samt meðvitaður um það og er meðvitaður alltaf um það að það eru alltaf tvær hliðar á öllum málum. En kjarni málsins er sá í þessu að það er enginn. Ekki hagnast ég á þessu. Þetta er allt gert til hagsbóta fyrir þessa stofnun.“
Máli sínu til stuðnings segir hann afraksturinn engan fyrir Officio. Kostnaður við tölvukerfið hafi til dæmis verið mikill. Og hann fullyrðir að Officio hafi farið á hausinn.
Officio fór reyndar ekki á hausinn heldur heitir í dag Formáli lögmenn, hefur þó ekki skilað ársreikningi frá 2021. A&T hét um hríð Ísafjörður 1960 en heitir í dag Formáli ehf. Bæði fyrirtækin eru í eigu Braga Rúnars Axelssonar.
Jón Ingvar og Bragi hafa gagnrýnt stjórn Innheimtustofnunar, sagt málið allt pólitíska fléttu, ákvarðanir illa grundaðar og að framganga stjórnarmanna hafi verið ómanneskjuleg. Í viðtalinu við Kveik fullyrti Jón Ingvar að engin lögbrot hefðu verið framin. En skiluðu sér allir fjármunir sem innheimtir voru?
„Sko, ég, já. Svo framarlega sem ég veit.“
Sögu Innheimtustofnunar lauk fyrir réttu ári, 1. janúar 2024. Þá var hún lögð niður og verkefnin færð til ríkisins,nánar tiltekið til sýslumannsins á Norðurlandi vestra á Blönduósi.
Það virðist erfitt að neita því að stjórnun og rekstur Innheimtustofnunar hafi verið með sérkennilegum hætti, í besta falli. Héraðssaksóknari hefur nú í á þriðja ár rannsakað hvort einhver lögbrot voru framin. Enn hefur ekki verið gefin út ákæra . Það er því alls óljóst hvort einhvern tíma verður ákært fyrir meint brot, hvað þá hvort einhver hlýtur dóm fyrir. Var þetta ólöglegt eða bara skrítið? Það á enn eftir að koma í ljós, samkvæmt RUV.
