Feður eru börnum dýrmætir
Kristinn Sigurjónsson í viðtali við Útvarp Sögu að ræða feðradaginn, 12. nóvember 2023. Sagði hann frá uppruna feðradagsins og erfiðri stöðu karlmanna og feðra fyrr og nú. Í gegnum söguna voru feður svo gott sem réttlausir við skilnað, litið var á börn sem einkaeign mæðra. Enn ber á þessu í stjórnsýslu og réttarkerfinu. Kristinn er fullur réttlætiskenndar og hefur því vakið athygli á misrétti sem karlmenn verða fyrir, en hann hefur meðal annars fylgst með frænda sínum sem hefur ekki séð dóttur sína í um áratug! Þó frændi Kristins eyddi milljónum í dómsmál og baráttu fyrir að sjá dóttur sína gat hann ekkert gert. Feður eru máttlausir gegn stjórnsýslu og dómstólum sem hygla konum.
Á sama tíma og það hallar svo bersýnilega á feður í samfélaginu kenna femínistar feðraveldi um venjulegt mótlæti sem þær verða fyrir í lífinu.
Kristinn hefur eins og margir upplifað ýmis áföll í lífinu. Hann varð fyrir því í æsku að vera nauðgað. Það var honum mikið áfall og hann hafði ekki rætt um það opinberlega áður. Karlmenn bera oft þjáningar sínar í einrúmi.
Annað áfall í lífinu var þegar hann var rekinn úr Háskólanum í Reykjavík án fyrirvara. Hann hafði þá barist gegn tálmunum og vakið athygli á misrétti gegn karlmönnum. Það leiddi til þess að femínistar réðust að honum og hæddu opinberlega. Ummæli sem hann skrifaði í framhaldi voru svo notuð sem réttlæting á brottvikningunni. Að vera rekinn, og að réttarkerfið brygðist honum, var jafnvel enn meira áfall en hinn skelfilegi atburður úr æsku. En mesta áfall sem Kristinn hefur upplifað var þegar hann missti faðir sinn. Feðradagurinn er dýrmæt áminning um mikilvægi feðra í lífi barna.
Greinar sem fjalla um tengsl og tengslaleysi feðra við börn sín og afleiðingar af því.
08. nóvember 2012 Feðradagurinn nálgast!
09. nóvember 2014 Feðradagurinn, til hamingju allir feður!
10. nóvember 2018 Feðradagur 2018 (Feðradagurinn)
11. nóvember 2018 Feðradagurinn 11. nóvember 2018
10. september 2018 Á engra vörum (Dagur baráttu gegn sjálfsvígum)
25. apríl 2019 Dagur foreldrafirringar á sumardaginn fyrsta (Baráttudagur gegn foreldraútilokun)
25. april 2020 Hafa ekki fengið að umgangast barnabarn sitt í 10 ár (Baráttudagur gegn foreldraútilokun)
10. september 2021 Dagur baráttu gegn sjálfsvígum (Dagur baráttu gegn sjálfsvígum)
24. apríl 2023 Áhrif foreldraútilokunar á börn án föðurfyrirmyndar (Baráttudagur gegn foreldraútilokun)
10. september 2023 Hvers vegna gefast margir drengir og karlmenn upp? (Dagur baráttu gegn sjálfsvígum)
12. nóvember 2023 Að verða pabbi (Feðradagurinn)
12. nóvember 2023 Í dag, sunnudaginn 12. nóvember 2023 er faðradagurinn (Feðradagurinn)
