Feðradagurinn 2024
Feðradagurinn er annar sunnudagur í nóv, núna í dag 10. nóv 2024. Fjölmiðlar hafa almennt lítinn áhuga á þeim enda, virðast þeir telja karlmenn almennt vera ofbeldisfull dusilmenni. Núna í ársbyrjun birtist grein í Tímariti Félagsráðgjafa sem ber heitið „Ofbeldi í nánum samböndum eins og það birtist í dómum“ Þess bera að geta að greinin er ritrýnd. Hér er látið í það skína að dómar séu einhver mælikvarði á afbrot. Þess er ekki getið að það er almennt viðurkennt bæði hérlendis og erlendis að konur fá miklu vægari dóma en karlar. Við þetta má svo bæta að það þarf mikið að ganga á til að feður fái forsjá yfir börnum sínum og þeir láta mikið ofbeldi yfir sig ganga til að verja börnin. Konur geta leitað til samtaka þar sem bæði lögfræðingar og lögreglukonur aðstoða konur til að kæra sambýlismenn sína þeim algjörlega að kostnaðarlausu. Þær geta líka búið í kvennaathvarfinu á meðan á þessu stendur. Feður og eiginmenn geta ekkert gert annað en að gráta í koddann sinn og búa áfram við ofbeldið til að verja börnin. Allir ef ekki langflestir hafa bent á að andlegt ofbeldi sé verra en líkamlegt ofbeldi, og svo ekki sé talað um þegar börnunum er beitt í þessu ofbeldi eins og t.d. með hótunum um að feðurnir fái aldrei að sjá þau meira, það er ekki orð um þetta. Eins og gjarna í lélegustu slúðurblöðum, þá er feðraveldinu kennt um og eingöngu vitnað í rannsóknir sem segja bara frá konum sem þolendum og körlum sem gerendum. Það er spurningin hvort ritrýningin hafi gert þá kröfu að vitnað var í eina rannsókna að viti, því vitnað er rannsókn World Health Organization frá 2012 og þar segir í greininni „Þó sýndi yfirlitsrannsókn að konur væru örlítið líklegri en karlar til þess að beita maka sinn vægu líkamlegu ofbeldi en þegar um alvarlegt líkamlegt ofbeldi væri að ræða voru karlar líklegri til þess að vera gerendur og konur þolendur“ Það er ekki minnst á það að þegar karlar svara fyrir sig, þá njóta þeir þess að vera sterkari. Það gildir ekki um börn og það er ekki sagt frá því að mæður beita börnin oftar ofbeldi en feður og líka þegar kemur að því að verða börnum að bana. Það er heldur ekki minnst á það að femínistar hafa beitt öllum ráðum til að koma í veg fyrir að sannleikurinn komi fram um að ofbeldi sé ekki kynjaskipt og má benda á greinina um Erin Pizzey, Þar kemur fram hvernig ráðist var á hana af ótrúlegri heift og grimmd þegar hún benti á það að ofbeldið væri ekki kynjaskipt. Þegar kvennablaðið hafði viðtal við fyrsta barnsföður Hjördísar Svan, þá var ráðist á blaðið og blaðamanninn. Það má svo að lokum benda á greinina Er þögnin Gulls ígildi? Af því að nú er feðradagurinn þá langa mig að benda á grein sem birtist fyrir rúmu ári sem verkefni Nínu Eck við félagsvísindadeild HÍ. Greinin er nokkuð málefnaleg og lýsir vel þeim þrautum og vanlíðan sem feður verða fyrir sem eru tálmaðir frá börnum sínum. Það vekur sérstaka athygli (undir fyrirsögninni. Feður finna fyrir sorg) að rannsóknin er styrkt af Nýsköpunarsjóði námsmanna og átti að vera mótsvar við baráttu gegn tálmunum. M.ö.o. Nýsköpunarsjóður námsmanna ætlaði að styðja eitt mesta og versta ofbeldi sem hægt er að beita börn, en það er tálmun.
Greinin: Hagur barns ætti alltaf að vera í forgrunni — Feður finna fyrir sorg
10. nóv. 2024 Kristinn Sigurjónsson
