Andlegt ofbeldi kvenpresta
Mjög gott viðtal við Valgerði Snæland um kynbundið ofbeldi kvenpresta. Það er mjög sennilegt að þetta andlega ofbeldi sem prestarnir beittu, sé margfalt algengara en bara innan kirkjunnar eins og við hjá samtökum um karlaathvarf höfum svo oft séð. Fjölmiðlar forðast að fjalla um þessa hlið málsins. Þarna eru bara konur, flestar prestar sem beita þessu andlega ofbeldi og Stígamót gleymdi algjörlega að minnast á það í sinni ráðstefnu um ofbeldi, eða gæti verið að Stígamót viti ekki hvernig raunveruleg kynjaskipting ofbeldis sé.
Málefni Digraneskirkju: Varð fyrir einelti og rógburði fyrir að standa með séra Gunnari
Valgerður Snæland Jónsdóttir fyrrverandi formaður sóknarnefndar Digraneskirkju varð fyrir miklu einelti og rógburði þegar hún var formaður sóknarnefndar, af hálfu þeirra sem höfðu ásakað séra Gunnar Sigurjónsson sóknarprest um kynrænt atferli. Þetta var meðal þess sem fram kom í máli Valgerðar sem var gestur í þætti Arnþrúðar Karlsdóttur í dag.
Eins og fram hefur komið hefur úrskurðarnefnd Kirkjuþings úrskurðað að Agnesi M. Sigurðardóttur hafi verið óheimilt, að setja mál séra Gunnars Sigurjónssonar þáverandi sóknarprests í Digraneskirkju, í áminningarferli í september í fyrra, þar sem skipunartíma hennar var lokið og hún því umboðslaus. Að auki hafi hann verið forsetaskipaður sem sóknarprestur.
Vissu að Agnes hafði ekki umboð
Valgerður segir að þau sem hafi mótmælt íhlutun Agnesar hafi vitað það í langan tíma að Agnes hafi verið umboðslaus þegar hún hafi hlutast til um málefni séra Gunnars. Valgerður segir að þau hafi marg ítrekað reynt að koma athugasemdum að hjá prófasti, Biskupsstofu og Kirkjuþingi og lagt á það áherslu að það þyrfti að kanna málið betur en það hafi ekkert verið hlustað á athugasemd frá Sóknarnefnd Digraneskirkju. Þau hafi ekki þorað að trúa því að þetta yrði niðurstaðan því þau hafi orðið vitni að svo miklum óheilindum í öllu ferlinu.
“ þetta eru búin að vera óheilindi frá upphafi og við eigum kannski í rauninni eftir að skilja betur um hvað þetta í rauninni snýst en það er búið að vera mikið um ósannsögli,óheilind og rógburður “ segir Valgerður.
Hún segir að þau hefðu haldið að hægt væri að treysta ákveðnum aðilum innan kirkjunnar við að fá stuðning við sinn málstað en í stað þess hafi hafist einelti og rógburður eftir að Valgerður tók tímabundið við formennsku sóknarnefndar, eftir að í ljós kom, að ein af þeim konum sem ásökuðu séra Gunnar var formaður sóknarnefndar.
MeeToo væðing innan kirkjunnar setti allt starf úr skorðum
Hún segir að upphaf málsins megi rekja til þess að Agnes hafi í áramótaávarpi sínu 2018 hafi lagt blessun sína yfir MeeToo væðingu innan kirkjunnar og þá hafi boltinn farið að rúlla.
Síðan gerist það að konur innan Digraneskirkju voru hvattar til þess að safna einhverjum sögum um séra Gunnar en Valgerður var ekki tilbúin að taka þátt í því og hófst þá eineltis aðgerðir gegn henni. málið hafi síðan ratað til teymis þjóðkirkjunnar.
Formaður Prestafélagsins mátti ekki tjá sig opinberlega
Óhætt er að segja að málið hafi dregið dilk á eftir sér og sem fyrr segir hefur Valgerður mátt sæta einelti af hálfu ásakenda séra Gunnars og fylgjenda þeirra og sömuleiðis var Séra Arnaldur Arnold Bárðarson þáverandi formaður Prestafélags Íslands hrakinn úr formannsbættinu fyrir það eitt að tjá skoðun sína á málinu í þætti á Útvarpi Sögu.
Hlusta má á fróðlega upprifjun Valgerðar á málinu í spilaranum hér að neðan
